Mannauðsstjórinn er þjónusta Ó.K. Lögmanna sem felst í utanumhaldi um mannauð fyrirtækisins. Þar nýti ég reynslu mína og þekkingu af starfsmannamálum og vinnurétti.
Með hækkandi launakostnaði vega mannauðsmál sífellt þyngra í rekstri fyrirtækja og hagræðing á því sviði getur skipt sköpum fyrir afkomuna.
Það sem þjónustan nær til
Ráðningar
Gerð atvinnuauglýsinga og ráðningarsamninga, ásamt ráðningarviðtölum. Farið er yfir hvaða kjarasamningur gildir um starfið, hvaða laun starfsmaðurinn á rétt á og hvernig þau eru reiknuð, og hvaða réttindi og skyldur fylgja starfinu.
Á starfstímanum
Fylgst er með mætingum, fjarvistum, veikindum og orlofi. Laun vegna fjarvista eru reiknuð og haft samband við starfsfólk vegna þeirra. Ef mætingum er ábótavant er gripið inn í, rætt við starfsmanninn og unnið að því að koma mætingu og viðveru í lag.
Vinnuslys
Slasist starfsmaður við vinnu þarf að tryggja rétt bæði starfsmannsins og fyrirtækisins. Tilkynna þarf slysið og sjá til þess að starfsmaðurinn fái læknisaðstoð án tafar. Sé um vinnuslys að ræða ber fyrirtækinu að greiða vinnuslyslaun samkvæmt gildandi kjarasamningi.
Starfslok
Þegar ráðningarsambandi lýkur, hvort sem það er vegna uppsagnar, riftunar eða brotthlaups úr starfi, þarf að ganga frá því og gera það upp lögum samkvæmt.
Ágreiningsmál
Komi upp ágreiningur um laun eða annað sem tengist launum get ég reiknað launin út frá tímaskráningum og öðrum gögnum um viðveru og aðstoðað við að leysa úr málinu. Leiti starfsmaður til stéttarfélags tek ég við samskiptunum við félagið og fylgi þeim eftir.
Sérsniðnar lausnir
Fyrirkomulagið er sniðið að þörfum hvers fyrirtækis.
Fast mánaðargjald
Samið er um fast verð á mánuði og ótakmarkað samband við mig.
Aðstoð eftir þörfum
Þú hefur samband þegar á þarf að halda og greiðir fyrir þá þjónustu sem þú óskar eftir hverju sinni, á verði sem samið hefur verið um.
Reynsla og þekking
Undanfarinn áratug hef ég starfað fyrir stéttarfélög með félagsmenn í iðnaði, á veitingahúsum og hótelum, við ræstingar og akstur.
Ég hef rekið mál fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Félagsdómi og hef því umtalsverða þekkingu og reynslu af því hvernig mál þurfa að vera úr garði gerð til að fá brautargengi fyrir dómi.
Nánar um mig →Hafa samband
Heyrðu í mér eða sendu mér póst og við finnum góða lausn fyrir þitt fyrirtæki í mannauðsmálum.